Að tileinka sér nýtt munstur og göngulag…

Jæja…allt að gerast! Ég er byrjuð í nýrri vinnu sem er eiginlega fyrsta “fullorðins” vinnan mín…hehe…allavega í tengslum við námið mitt sem ég var að klára.

Af DDV málum er það að frétta að ég þarf greinilega að finna taktinn upp á nýtt eftir að ég byrjaði að vinna. Eftir að ég byrjaði í vinnunni hafa dagarnir undanteknilngalaust byrjað vel…hef staðið mig 100% þangað til kl.5 á daginn. Þá er eins og einhver ÓÞOLANDI púki segi mér að taka u-beygju…er orðin svooooo svöng og gráðug að ég sæki í fljótlegan og kolvetnaríkan kvöldmat sem ég þarf ekkert að hafa fyrir. Ooooog þá kemur helv******* “fokkit” attitúdið um að dagurinn sé hvort eð er ónýtur end jú nó ðe rest….garrrrg hvað þetta er síendurtekin og pirrandi truflun!

Er orðin alveg ofsalega svekkt út í mig…finnst ég vera algjör lúser! Niðurrif.is

Eeeeen…ég veit af gamalli reynslu að ég þarf ekki annað ein EINN 100% dag…þá er ég “safe”. Það eru bara orðnar tvær vikur síðan ég átti svoleiðis dag og ég er hætt að hafa trúna…

En ég er algerlega búin að finna minn “veika punkt”…hann er seinni partinn. Þá er algjört MÖST að ég eigi ekki eftir að versla í matinn og fara heim að elda. Ég þarf einfaldlega að stokka spilunum upp á nýtt og tileinka mér nýtt munstur eftir að ég byrjaði að vinna.

Ég er búin að ákveða að ég ætla að missa 20 kíló á 30 vikum… Held það sé alveg do-able. Ástæðan fyrir þessu markmiði mínu er að eftir nkl.30 vikur ætlum við kallinn að láta pússa okkur saman:) Þ.e. 27.febrúar…rómantík í rökkrinu;) Oooog þá skal ég sko smellpassa í krúttlegan kjól!

Ég gefst ekki upp og hananú…. 

Viktun 3

Helvískur… Strumpurinn fór upp um 700 gr. þessa vikuna en ég segi sko stopp þar! Ekkert meira rúgl! Ég skrifa þetta alfarið á agaleysið mitt í útilegunni. Svo pæli ég ekki í því meir… Bara halda áfram…

Nú er DDV komið í frí…þ.e.a.s. viktanirnar. Fríið er í þrjár vikur og ég stefni á að vikta mig með systur minni (sem er líka ötull DDV-ari) vikulega og losa heil þrjú kíló á þessum þremur vikum…íhaaaaaaaaaaaaa

Viktun 2

Tjahhhhéddna hér! Kellingin losaði sig við 1,6 kíló þessa vikuna þannig að nú eru komin heil 5,2 kíló á tveimur dögum! Vúppídúúúúú!!!!

Næsta skref er að mastera eitt stykki útilegu með fullt af fólki um helgina. Ætla að skipuleggja mig ossa vel og halda dampi…tími ekki að standa í stað eða þyngjast…það er náttla bara ekki hægt þegar maður er á sona siglingu!

Knúz í klessu

1. viktun…

Jæja…þá er fyrstu viktun lokið og viti menn???!!! Strumpurinn losaði sig við heil 3,6 kíló af smjéri! Tjahh…eða vatni kannski…who cares???!!! 3,6 kíló engu að síður:)

Nú er bara að halda áfram á beinu brautinni…

L8r

Áskoranir fyrstu vikuna…

Jæja, nú er runninn upp fimmti dagurinn á DDV fæðinu og það er nú ekki annað hægt að segja en að þessir dagar hafi verið fullir af áskorunum!!!! Dagarnir hafa m.a. falið í sér…

  • Ammlið mitt
  • Sumarbústaðarferð
  • Grillpartý hjá vinum
  • Bíóferð

Og viti menn…ég stóðst prófið! Ekkert svindl þeink jú verí fæn! Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi greinilega…

Ég átti samt hvað erfiðast með að fá mér ekki popp þegar bíóið angaði af nýútsprungu poppi þannig að ég ætla að muna það næst. Fara bara með eitthvað DDV-vænt snarl næst… You live and you learn:)

Annars býst ég nú ekki við að margir séu að lesa þetta blogg úr því að ég var alveg hætt þessu en það væri samt gaman að fá smá línu frá ykkur ef einhver er að skoða:)

2 dagar í 1. viktun og ég get ekki beðið!

Aftur á sporið…

Jæja…hér er ég komin á ný… Ég þurrkaði allt það gamla út þegar ég uppgötvaði að gamlir vinir og vandamenn voru að lesa þetta blogg en ég hafði einhvernveginn alltaf hugsað mér að blogga hérna hálf “anonymous” helst fyrir sjálfa mig og aðra DDV-ara. Ég blogga annarstaðar undir nafni um allt og ekkert en þó ALDREI um mataræði… Vil bara halda þessu aðskildu… En ég var samt farin að sakna DDV bloggsins míns!

 Ég veit ekki með hvaða hætti ég á eftir að blogga í þessu ferðalagi mínu…hvort það verður daglega, til að setja inn tölur, til að kvarta og kveina nú eða bara til að fagna vörðum…enda á þetta ekki að vera nein kvöð!

Í dag er sem sé fyrsti 100% DDV dagurinn í nokkra mánuði. Fyrir þá sem vita ekkert um söguna mína þá hóf ég DDV ferðalagið mitt í september 2008 og missti ca.14 kíló á þremur mánuðum. Fljótlega fór ég að missa dampinn og var alltaf að reyna sjálf við þetta…þ.e.a.s. án þess að fara í viktanir en ég hef samt notað spjall-rásina óspart (http://ddvspjall.forumsfree.org/) sem ég mæli hiklaust með! Nú hef ég hins vegar játað mig sigraða og áttað mig á því að ég þarf á stuðningnum að halda og splæsti því 10 viktunum á mig… Í fyrstu viktuninni kom í ljós að ég hafði bætt á mig heilum 7 kílóum síðan síðast (sjæse) en ef ég lít á björtu hliðarnar þá eru ennþá farin 7! (Hugsa eins og Hugsa eins og Pollýanna Hugsa eins og Pollýanna Hugsa eins og Pollýanna….)

Nú er fyrsti DDV-dagurinn að verða búinn og ég verð að segja að hann var talsvert erfiðari en mig minnti! Síðast man ég eftir því að hafa verið í svo miklu sjokki yfir því hvað þetta var MIKILL MATUR en nú fannst mér þetta ekki upp í nös á ketti!!!! Auðvitað höfðu skammtarnir stækkað hjá mér í “pásunni” en ég held nú líka að það megi rekja þetta til þess að í þetta skiptið kann ég öll “trikkin” við grænmetið…þ.e.a.s. að gera minna úr því. T.d. með því að gera súpur og hafa 2-3 grænmetisrétti með hádegis- og kvöldmatnum. Þ.e.a.s. að matreiða grænmetið á ólíkan hátt. Þegar ég byrjaði síðast þá byrjaði ég held ég á því að reyna að torga 300 gr. af salati með hverri máltíð! En ég er bjartsýn á að ég venjist skömmtunum fljótlega. Ég ætla bara að stefna á 100% DDV viku fyrst…ef ég kemst yfir þann hjalla held ég að þetta verði auðveldara með tímanum (aftur Pollýanna)…

Jæja…læt þetta gott heita í bili og hlakka til að sofna með góðri samvisku!